Þjóðræknisþing 2016 verður haldið sunnudaginn 28. ágúst nk. að Hótel Natura í Reykjavík og hefst kl. 14.00. Heiðursgestur þingsins verður nýkjörinn forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson sem mun ávarpa þingið. Einnig ávarpar þingið Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra, en hann var heiðursgestur á Íslendingahátíðunum í Mountain og Gimli í byrjun þessa mánaðar. Að vanda er dagskráin fjölbreytt.
DAGSKRÁ:
Setning: Halldór Árnason, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga.
Ávörp: Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Sunna Pam Furstenau, forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi.
Tónlist: Lisa Sigurgeirson Maxx og Michael Darragh frá Kanada
Erindi: Michelle Valberg ljósmyndari af íslenskum ættum segir frá starfi sínu í íshafinu
í máli og myndum.
Kaffihlé: Miðar fyrir kaffi og meðlæti seldir við innganginn fyrir 500 kr. (enginn posi).
Erindi: Hjálmar W. Hannesson segir frá starfi sínu sem aðalræðismaður í Winnipeg.
Tónlist: Lisa Sigurgeirson Maxx og Michael Darragh
Erindi: Jóel Friðfinnsson fulltrúi Kanada í stjórn Þjóðræknisfélagsins: Örnefni á Nýja
Íslandi – Aðferðafræði íslenskra landnámsmanna við nafngiftir jarða sinna
í Vesturheimi.
Snorri West 2016. Ungir íslenskir þátttakendur í Snorra West verkefninu segja frá fjögra vikna ferð þeirra á Íslendingaslóðir í sumar.
Þingstjórar: Svavar Gestsson, fv. aðalræðismaður Íslands í Manitoba og Hulda Karen Daníelsdóttir stjórnarmaður í Þjóðræknisfélagi Íslendinga.
Þinglok eigi síðar en kl. 16.30