Aðalfundur ÞFÍ verður haldinn fimmtud. 28. febrúar 2019 kl. 17:00 í utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25.

DAGSKRÁRDRÖG:

A.VENJULEG AÐALFUNDARSTÖRF:

1. Fundarsetning, kjörinn fundarstjóri og fundarritari.
2. Skýrsla félagsstjórnar.
3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar til samþykktar.
4. Kjörin stjórn, varastjórn og skoðunarmaður reikninga.
5. Kjörnefnd vegna næsta aðalfundar kosin.
6. Önnur mál.

B. KAFFIHLÉ í boði utanríkisráðuneytisins.

C. ERINDI: Dr. Birna Bjarnadóttir, fyrrverandi forstöðumaður Íslenskudeildar Manitobaháskóla og núverandi verkefnastjóri við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Háskóla Íslands flytur erindið:
Íslenskudeildin vestan hafs í sögu og samtíð.

Bókin SIGURTUNGA – Vesturíslenskt mál og menning verður kynnt á fundinum af próf. Emeritus Höskuldi Þráinssyni, en hann er einn þriggja ritstjóra bókarinnar. Hægt verður að fá bókina á 20% afslætti.

Ég hvet félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og taka með sér gesti.
Með bestu kveðjum,
Hjálmar W. Hannesson, form. ÞFÍ